Borvél m/höggi ONE+ RPD18C1 60 Nm m/ 2 rafhlöðum
Öflug og fyrirferðarlítil 18 V ONE+ borvél m/höggi með kolalausum mótor og allt að 60 Nm togi. Vélin hentar fyrir borun og skrúfun í timbur og málm auk höggborunar í múr. Hún er með 13 mm patrónu, 2 gíra og 24 togstillingar fyrir góða stjórn við fjölbreytt verkefni. LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið og vélin er samhæf öllum Ryobi 18 V ONE+ rafhlöðum. Kemur með 5,0 Ah og 2,0 Ah rafhlöðu, hleðslutæki, 31 stk. bitasetti og verkfærakassa. - 13 mm patróna fyrir öruggt grip á borum og bitum - 2 gírar fyrir fjölbreytta borun og skrúfun - 24 togstillingar fyrir góða stjórn við skrúfun - 60 Nm hámarkstog - Höggstilling fyrir borun í múr - Kolalaus mótor fyrir góð afköst og endingu - LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið - Samhæf öllum Ryobi 18 V ONE+ rafhlöðum