Viðskiptaskilmálar

Rubix Ísland ehf.

Kt. 501110-0190, Dalvegi 32A , 201 Kópavogi, sími: 522-6262, rubix.is@rubix.com, rubix.is. Skilmálar þessir gilda frá 7.7.2026.

A. ALMENN ÁKVÆÐI (gilda um öll viðskipti).

1. GILDISSVIÐ OG SKILGREININGAR.
1.1. Skilmálar þessir gilda um öll kaup á vöru og þjónustu frá Rubix Ísland ehf. („Rubix“ eða „seljandi“), hvort sem viðskiptin fara fram á starfsstöð, símleiðis, með tölvupósti eða á vefsvæði Rubix.
1.2. Skilmálarnir skiptast í almennan hluta (2.–14. gr.), sem gildir um öll viðskipti, og sérstakan neytendahluta (15.–19. gr.), sem gildir þegar kaupandi er neytandi. Stangist almenn ákvæði á við neytendahlutann eða við ófrávíkjanleg lög, ganga ákvæði neytendahlutans og laganna framar gagnvart neytanda.
1.3. Skilgreiningar:
- Neytandi: einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu utan atvinnustarfsemi, sbr. lög nr. 48/2003 um neytendakaup.
- Fyrirtæki: kaupandi sem á í viðskiptum í atvinnuskyni.
- Fjarsölusamningur: samningur sem gerður er án þess að seljandi og kaupandi séu samtímis á sama stað, t.d. í netverslun eða símleiðis.
1.4. Um kaup fyrirtækja gilda lög nr. 50/2000 um lausafjárkaup að því leyti sem ekki er á annan veg samið í skilmálum þessum. Um kaup neytenda gilda ófrávíkjanleg lög nr. 48/2003 um neytendakaup og lög nr. 16/2016 um neytendasamninga, og verður réttur neytanda samkvæmt þeim aldrei skertur með skilmálum þessum.

2. VERÐ OG PANTANIR.
2.1. Öll verð eru í íslenskum krónum. Verð og upplýsingar á vefsvæði og í verðskrám eru birt með fyrirvara um prent-, kerfis- og innsláttarvillur.
2.2. Rubix áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara. Verðbreytingar hafa þó ekki áhrif á pantanir sem Rubix hefur þegar staðfest, sbr. gr. 2.4.
2.3. Bindandi samningur kemst á þegar Rubix staðfestir pöntun með ótvíræðum hætti (t.d. með pöntunarstaðfestingu í tölvupósti). Sjálfvirk móttökukvittun telst ekki ein og sér staðfesting á samningi.
2.4. Sé verð vöru bersýnilega rangt vegna prent-, kerfis- eða innsláttarvillu, og kaupanda mátti vera villan ljós, er Rubix heimilt að hafna eða rifta pöntuninni. Rubix skal þá tilkynna kaupanda án ástæðulauss dráttar og endurgreiða að fullu þær fjárhæðir sem þegar hafa verið greiddar. Ákvæði þetta skerðir ekki lögbundin réttindi neytanda.

3. GREIÐSLUSKILMÁLAR.
3.1. Gjalddagi reiknings er útgáfudagur hans nema annað sé tilgreint. Kaupendum ber að greiða í samræmi við þá skilmála sem fram koma á reikningi.
3.2. Séu reikningar ógreiddir á eindaga reiknast hæstu lögleyfðu dráttarvextir frá gjalddaga, sbr. lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu.
3.3. Rubix áskilur sér rétt til að fella niður reikningsafslátt dragist greiðsla umfram umsaminn greiðslufrest.
3.4. Þegar samið hefur verið um afhendingu í áföngum, eða um innborganir vegna vörukaupa, og greiðsla hefur ekki borist vegna fyrri afhendinga eða kaupandi stendur ekki við umsamdar innborganir, er Rubix heimilt að stöðva frekari afhendingar þar til fullnægjandi trygging fyrir greiðslu liggur fyrir.

4. SÖLUVEÐ.
4.1. Seljandi heldur söluveði í seldri vöru, eins og hún er skilgreind á reikningi, samkvæmt III. kafla laga nr. 75/1997 um samningsveð, þar til kaupverð samkvæmt sölureikningi hefur verið að fullu greitt. Sé greitt með víxlum, skuldabréfum eða ávísunum helst söluveðið þar til skuld samkvæmt slíku skjali er að fullu greidd.
4.2. Söluveð gildir að því marki sem lög heimila og fellur niður samkvæmt ákvæðum laga nr. 75/1997, meðal annars þegar seldri vöru er skeytt við annan aðalhlut eða henni er verulega breytt eftir afhendingu.

5. AFHENDING, SENDINGAR OG ÁHÆTTA.
5.1. Gagnvart fyrirtækjum er vara send á ábyrgð og kostnað kaupanda, og áhætta af vörunni flyst til kaupanda við afhendingu hennar til flutningsaðila.
5.2. Gagnvart neytendum flyst áhætta af vörunni ekki til neytanda fyrr en hann, eða aðili á hans vegum annar en flutningsaðili sem neytandi valdi sjálfur, hefur veitt vörunni viðtöku, sbr. lög nr. 48/2003.
5.3. Sé pöntuð vara ekki sótt eða henni ekki veitt viðtaka af ástæðum sem varða kaupanda, er Rubix heimilt að senda vöruna á kostnað kaupanda eða geyma hana á kostnað og ábyrgð kaupanda, og áskilja sér geymslu- og umsýslugjald. Gagnvart neytendum gildir þetta ákvæði með fyrirvara um afturköllunarrétt skv. 15. gr.

6. TAFIR Á AFHENDINGU OG ÓVIÐRÁÐANLEG ATVIK (FORCE MAJEURE).
6.1. Gagnvart fyrirtækjum ber seljandi ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni vegna tafa á afhendingu, rangrar afhendingar eða galla sem berst frá erlendum birgjum.
6.2. Hvorki gagnvart fyrirtækjum né neytendum ber seljandi ábyrgð á tjóni sem rekja má til atvika sem hann fær ekki ráðið við (force majeure), þar á meðal verkfalla, verkbanna, eldsvoða, náttúruhamfara, styrjaldar, farsótta, alvarlegra truflana í aðfangakeðju eða sambærilegra atvika.
6.3. Ákvæði þessarar greinar takmarka ekki lögbundinn rétt neytanda vegna afhendingardráttar samkvæmt lögum nr. 48/2003.

7. GALLAR OG KVÖRTUN, FYRIRTÆKI.
7.1.
Kaupandi sem er fyrirtæki skal skoða vöru við afhendingu og tilkynna Rubix um galla án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var, þó eigi síðar en innan eins árs frá afhendingu, sbr. lög nr. 50/2000. Vanræki kaupandi þessa tilkynningarskyldu getur hann ekki borið gallann fyrir sig síðar.
7.2 . Um úrræði fyrirtækja vegna galla fer eftir lögum nr. 50/2000 og ákvæðum gr. 8.

8. ÁBYRGÐ SELJANDA (FRJÁLS ÁBYRGÐ).
8.1. Rubix veitir eins árs ábyrgð frá dagsetningu reiknings, nema annað sé sérstaklega tilgreint fyrir tiltekna vöru. Ábyrgð þessi er frjáls viðbót við lögbundin réttindi kaupanda og skerðir þau ekki. Gagnvart neytanda gildir lögbundinn kvörtunarfrestur skv. 16. gr. óháð þessum ábyrgðartíma.*
8.2. Komi fram framleiðslu- eða efnisgalli á ábyrgðartímabilinu takmarkast ábyrgð Rubix, gagnvart fyrirtækjum, við kostnað vegna varahluta og viðgerðar á hinni gölluðu vöru. Gagnvart neytendum fer um úrræði eftir 17. gr.
8.3. Gagnvart fyrirtækjum ber seljandi ekki ábyrgð á afleiddu tjóni vegna galla eða bilunar, og takmarkast bótafjárhæð við söluverð viðkomandi vöru án virðisaukaskatts.
8.4. Gagnvart fyrirtækjum skal kaupandi kosta og annast flutning vöru á verkstæði seljanda til viðgerðar. Gagnvart neytendum fer um kostnað eftir 17. gr.
8.5. Notuðum tækjum fylgir ekki frjáls ábyrgð nema um slíkt sé samið skriflega. Þetta skerðir ekki lögbundinn kvörtunarrétt neytanda vegna notaðra vara.

9. BROTTFALL ÁBYRGÐAR.
9.1. Frjáls ábyrgð skv. 8. gr. fellur niður og seljandi ber ekki ábyrgð á tjóni þegar bilun, skemmd eða eyðilegging vöru verður rakin til:
- Rangrar eða óviðeigandi meðferðar kaupanda, eða aðila sem hann ber ábyrgð á,
- Þess að verksmiðju- eða raðnúmer hefur verið fjarlægt af vörunni,
- Þess að ekki hefur verið farið að fyrirmælum framleiðanda um öryggi, uppsetningu og viðhald samkvæmt handbók,
- Tæringar, eðlilegs slits eða skemmda af völdum veðurs.

9.2. Ákvæði þessarar greinar hafa ekki áhrif á mat á því hvort vara telst gölluð í skilningi laga nr. 48/2003 gagnvart neytanda.

10. SKAÐSEMISÁBYRGÐ.
10.1. Um ábyrgð á tjóni sem vara kann að valda á fólki eða munum fer eftir lögum nr. 25/1991 um skaðsemisábyrgð. Rubix er dreifingaraðili í skilningi þeirra laga. Ábyrgð samkvæmt lögunum verður ekki takmörkuð með skilmálum þessum að því marki sem lögin eru ófrávíkjanleg.

11. PERSÓNUVERND.
11.1. Rubix vinnur persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð (ESB) 2016/679. Nánar er fjallað um vinnsluna í persónuverndarstefnu Rubix: [tengill].

12. ÁGREININGUR OG LÖGSAGA.
12.1. Um skilmála þessa og viðskipti á grundvelli þeirra gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur sem ekki verður leystur með samkomulagi skal reka málið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
12.2. Neytandi getur jafnframt lagt ágreining fyrir kærunefnd vöru- og þjónustukaupa (kvth.is), sem er sjálfstæð úrskurðarnefnd með aðsetur hjá Neytendastofu og úrskurðar í ágreiningsmálum neytenda og seljenda um kaup á vöru og þjónustu.

13. ÓGILDI EINSTAKRA ÁKVÆÐA.
13.1. Reynist eitthvert ákvæði þessara skilmála ógilt eða óframfylgjanlegt raskar það ekki gildi annarra ákvæða, sem standa óhögguð.

14. BREYTINGAR Á SKILMÁLUM.
14.1. Rubix áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Um hver einstök viðskipti gilda þeir skilmálar sem í gildi eru þegar pöntun er staðfest.

B. SÉRÁKVÆÐI UM NEYTENDAKAUP.

15. RÉTTUR NEYTANDA TIL AÐ FALLA FRÁ FJARSÖLUSAMNINGI.
15.1. Neytandi hefur rétt til að falla frá fjarsölusamningi án þess að tilgreina ástæðu innan 14 daga, sbr. lög nr. 16/2016 um neytendasamninga. Fresturinn rennur út 14 dögum eftir þann dag þegar neytandi, eða aðili á hans vegum annar en flutningsaðili, tók við vörunni. Sé um margar vörur í einni pöntun að ræða, sem afhentar eru hver í sínu lagi, rennur fresturinn út 14 dögum eftir að síðasta varan er móttekin.
15.2. Til að nýta réttinn skal neytandi tilkynna Rubix um ákvörðun sína með ótvíræðum hætti, t.d. með tölvupósti á rubix.is@rubix.com eða með stöðluðu uppsagnareyðublaði (viðauki II við reglugerð nr. 435/2016). Nægilegt er að tilkynning sé send áður en fresturinn rennur út.
15.3. Falli neytandi frá samningi endurgreiðir Rubix allar greiðslur sem borist hafa frá honum, þar með talinn kostnað við afhendingu (þó ekki umfram kostnað við ódýrustu tegund staðlaðrar afhendingar sem Rubix býður), án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum frá því að tilkynning barst. Endurgreitt er með sama greiðslumáta og neytandi notaði, nema annað sé sérstaklega umsamið, og neytanda að kostnaðarlausu.
15.4. Rubix er heimilt að halda eftir endurgreiðslu þar til varan hefur borist til baka eða neytandi hefur fært sönnur á að hann hafi endursent hana.
15.5. Neytandi skal endursenda vöruna án ástæðulauss dráttar og eigi síðar en 14 dögum eftir að hann tilkynnti afturköllun. Neytandi ber beinan kostnað af endursendingu vörunnar (nema Rubix hafi tekið á sig þann kostnað). Neytandi ber ábyrgð á rýrnun á verðmæti vörunnar sem rekja má til meðferðar umfram það sem nauðsynlegt var til að ganga úr skugga um eðli, eiginleika og virkni hennar.
15.6. Rétturinn til að falla frá samningi tekur meðal annars ekki til: vöru sem framleidd er samkvæmt forskrift neytanda eða ber skýrt persónulegt auðkenni hans, innsiglaðrar vöru sem ekki er unnt að skila af heilbrigðis- eða hreinlætisástæðum hafi innsigli verið rofið, vöru sem eðlis síns vegna er blandað óaðskiljanlega saman við aðra vöru eftir afhendingu, svo og annarra tilvika sem talin eru upp í 18. gr. laga nr. 16/2016.

16. GALLAR OG KVÖRTUNARFRESTUR NEYTENDA.
16.1.
Reynist vara gölluð gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup, sem eru ófrávíkjanleg.
16.2. Neytandi skal tilkynna Rubix um galla án ástæðulauss dráttar frá því að hann varð galla var eða mátti verða hans var. Frestur neytanda til að leggja fram kvörtun er þó aldrei styttri en tveir mánuðir frá því að hann varð galla var.
16.3. Kvörtunarfrestur er tvö ár frá afhendingu.
16.4. Galli sem kemur fram innan sex mánaða frá afhendingu telst hafa verið til staðar við afhendingu, nema Rubix sýni fram á annað eða það samrýmist ekki eðli gallans.

17. ÚRRÆÐI NEYTANDA VEGNA GALLA.
17.1. Neytandi getur, eftir því sem við á og í samræmi við lög nr. 48/2003, krafist úrbóta, nýrrar afhendingar, afsláttar, riftunar eða skaðabóta.
17.2. Úrbætur eða ný afhending skulu fara fram án kostnaðar og verulegs óhagræðis fyrir neytanda og innan sanngjarns tíma. Rubix ber kostnað sem leiðir af réttmætri gallakvörtun, þar á meðal kostnað af sendingu vöru til viðgerðar eða endurafhendingar.

18. FRJÁLS SKILARÉTTUR (TIL VIÐBÓTAR LÖGBUNDNUM RÉTTI).
18.1. Til viðbótar við lögbundinn afturköllunarrétt skv. 15. gr. tekur Rubix við lagervöru sem kaupandi vill skila, enda fari skilin fram innan 15 daga frá afhendingu og varan sé í sama ásigkomulagi og við afhendingu. Í slíkum tilvikum fær kaupandi inneignarnótu fyrir andvirði vörunnar.
18.2. Þessi frjálsi skilaréttur kemur ekki í stað 14 daga afturköllunarréttar neytanda skv. 15. gr., þar sem neytandi á rétt á endurgreiðslu með peningum en ekki inneign.
18.3. Verði skil ekki rakin til mistaka seljanda eða galla á vörunni er Rubix heimilt að draga áfallinn kostnað frá inneign kaupanda.

19. FORGANGUR NEYTENDALAGA.
19.1. Stangist skilmálar þessir á við ófrávíkjanleg ákvæði laga nr. 48/2003 um neytendakaup, laga nr. 16/2016 um neytendasamninga eða önnur lög sem vernda neytendur, ganga ákvæði þeirra laga framar skilmálum þessum.

*Reikningur Rubix gildir sem ábyrgðarskírteini.