Við höfum sameinað vefverslanir Verkfærasölunnar og Rubix í eina og nú finnur þú vörur frá báðum á einum stað. Við erum enn að bæta við vörum og slípa vefinn til. Finnurðu ekki það sem þig vantar? Hringdu í 522 6262 eða sendu okkur póst á rubix.is@rubix.com og við aðstoðum þig.
Takk fyrir þolinmæðina!
Hjá okkur finnur þú eitt mesta úrval landsins af rafmagnsverkfærum, handverkfærum, iðnaðarvörum, vinnufatnaði og öryggisbúnaði, afgreitt af fólki sem þekkir vöruna og með stærsta dreifingaraðila iðnaðarvara í Evrópu að baki.
Við erum viðurkenndur dreifingaraðili Milwaukee á Íslandi. Í verslun okkar í Síðumúla 9 er eitt mesta úrval Milwaukee-verkfæra og aukahluta á einum stað á Norðurlöndum, yfir 3.000 vörur úr M18-, M12- og MX FUEL-kerfunum. Auk Milwaukee flytjum við inn og seljum vörur frá Ryobi, Hultafors, Wera, Gedore, Knipex, Yato, Telwin, Fini, Petrollo, SKF, Vitillo, HH Workwear og fleiri framleiðendum.
Verslanir.
Við rekum fjórar verslanir: í Síðumúla 9 í Reykjavík, Dalvegi 32a í Kópavogi, Óseyri 4 á Akureyri og Fitjabraut 2 í Reykjanesbæ.
Verkstæði.
Í Síðumúla 11 rekum við verkstæði þar sem við gerum við og þjónustum verkfærin og tækin sem við seljum.
Rubix, evrópskt bakland.
Rubix er stærsti dreifingaraðili iðnaðarvara og viðhaldslausna (MRO) í Evrópu, með yfir 750 starfsstöðvar í 24 löndum, yfir 220.000 viðskiptavini og meira en 2 milljónir vörunúmera. Samstæðan varð til árið 2017 við samruna IPH Group og Brammer Group og starfar í dag undir einu nafni – Rubix.
Á Íslandi ná ræturnar aftur til ársins 2007, þegar starfsemin hófst undir merkjum Brammer, og árið 2010 var Brammer Ísland ehf. stofnað. Í dag starfa um 70 manns hjá Rubix á Íslandi, fjölbreyttur hópur sérfræðinga, hver á sínu sviði. Höfuðstöðvarnar eru að Dalvegi 32a í Kópavogi, þar sem verslun, skrifstofa og vöruhús þjóna allri starfseminni á landinu. Á Reyðarfirði rekum við auk þess starfsstöð sem þjónustar Alcoa Fjarðaál með sérsniðinni vöruhúsa- og aðfangaþjónustu fyrir varahluti og rekstrarvörur.
Á Dalvegi er meira en verslun. Þar er einnig verkstæði þar sem við smíðum vökva- og loftslöngur frá Vitillo eftir máli. Þetta er það sem evrópskt bakland þýðir í reynd, aðgangur að vörum sem ekki eru til á lager hérlendis, styttri afhendingartími á sérpöntunum og samningsbundið rekstraröryggi fyrir stærri viðskiptavini.
Árið 2022 varð Verkfærasalan hluti af Rubix-samstæðunni. Þjónustan sem þú þekkir breytist ekki, sama fólkið, sömu verslanirnar, sama verkstæðið. En að baki henni stendur nú:
Breiðara úrval. Aðgangur að evrópsku vörusafni Rubix þegar varan er ekki til hér heima.
Aðfangastýring fyrir fyrirtæki.
Við tökum að okkur birgðahald, sérpantanir og fastan varahlutalager – og bjóðum iðnaðarsjálfsala (Invend) og starfsstöð innan þíns fyrirtækis (Insite) svo vélarnar stoppi ekki.
Reikningsviðskipti og fyrirtækjaþjónusta.
Við bjóðum uppá reikningsviðskipti fyrir fyrirtæki, afsláttarkjör og sölumenn með sérþekkingu á verkfærum, vinnufötum, legum, dælum, glussaslöngum, sjávarútvegi og framleiðslu.
Hægt er að sækja reikningsviðskipti neðst á síðunni.
Markmið okkar.
Að vera fyrsti kostur íslenskra fyrirtækja og fagfólks í verkfærum, iðnaðarvörum, vinnufatnaði og öryggisbúnaði, sem einfalda rekstur og aðfangastýringu, vörum sem endast og þjónustu sem stendur undir nafni.
Við störfum eftir gildum Rubix-samstæðunnar: við erum heiðarleg, tökum ábyrgð og framkvæmum, erum forvitin, gefumst ekki upp og fögnum fjölbreyttum viðhorfum.