Snúningslaser Para DS Green m/ móttakara
Futech Para DS Green sjálfstillandi snúningslaser með grænum lasergeisla fyrir nákvæmar hæðarmælingar, afréttingar og hallastillingar innan- og utanhúss. Laserinn er með rafknúna sjálfstillingu, stafræna hallastillingu á X- og Y-ás og ±1 mm nákvæmni á 10 m. Hann hefur allt að 300 m drægni í hvora átt með meðfylgjandi móttakara og hentar vel við byggingarframkvæmdir, jarðvinnu og uppsetningar. LCD-skjár og þráðlaus fjarstýring með skjá auðvelda stillingar og notkun. Tækið er með IP65 ryk- og vatnsvörn og 5/8" festingu fyrir þrífót. Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri Li-ion rafhlöðu og er með USB-C tengi fyrir aflgjafa. Afhent í tösku með lasermóttakara, fjarstýringu, rafhlöðu, hleðslubúnaði og fylgihlutum. - 5/8" festing fyrir þrífót - Allt að 300 m drægni í hvora átt með móttakara - Endurhlaðanleg Li-ion rafhlaða - Fjarstýring með skjá fylgir - IP65 ryk- og vatnsvörn - LCD-skjár fyrir stillingar - Lárétt og lóðrétt notkun - Mælinákvæmni ±1 mm á 10 m - Móttakari Para Receiver MM Green fylgir - Rafknúin sjálfstilling innan ±5° - Skönnunaraðgerð með stillanlegu horni - Stafræn hallastilling á X- og Y-ás - USB-C tengi fyrir aflgjafa