• Vöruflokkar
    • Vörumerki
    • Afgreiðslutímar
    • Um okkur

Um Rubix

  • Um okkur
  • Verslanir
  • Starfsfólk
  • Umsókn um reikningsviðskipti
  • Viðskiptaskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Jafnlaunastefna

Samfélagsmiðlar

  • Rubix/VFS
  • Rubix/VFS
  • Rubix/VFS
  • VFS

Hafa Samband

  • Fyrirspurnir: rubix.is@rubix.com
  • Fjármáladeild: finance.is@rubix.com
Rubix
Milwaukee authorised distributorFramúrskarandi fyrirtæki 2025 og Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2025

Niðurstöður fyrir ‘tenglaklemma f netsnurur ofl’

249 niðurstöður

Rafmagnsverkfæri160Handverkfæri10Vélar & tæki6Skipulag og geymsla3
Hersluskrall M12 FUEL™ FRAIWF12-0 1/2″ 270 Nm
Milwaukee
Uppselt

Hersluskrall M12 FUEL™ FRAIWF12-0 1/2″ 270 Nm

Öflugt M12 FUEL™ 1/2″ hersluskrall með vinkilhaus sem hentar sérstaklega vel þar sem erfitt er að komast að. Vélin skilar allt að 270 Nm herslutogi og 300 Nm losunartogi. 4-Mode DRIVE CONTROL™ gefur góða stjórn við herslu og losun, ásamt sérstökum stillingum sem draga úr hættu á ofherslu og veita betri stjórn þegar bolti losnar. - 1/2″ ferkantsdrif með núningshring fyrir fljót toppaskipti - 4-Mode DRIVE CONTROL™ fyrir aukna stjórn við herslu og losun - Allt að 270 Nm herslutog - Allt að 300 Nm losunartog - Langt og mjótt hús auðveldar aðgengi á erfiðum stöðum - LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið - M12 FUEL™ með POWERSTATE™ kolalausum mótor - Vinkilhaus, aðeins 71 mm, fyrir betra aðgengi í þröngum rýmum

56.900 kr.
Hersluskrall M12 FRAIWF38-0 270Nm
Milwaukee
Uppselt

Hersluskrall M12 FRAIWF38-0 270Nm

Öflugt M12 FUEL™ 3/8″ hersluskrall með vinkilhaus sem hentar sérstaklega vel þar sem erfitt er að komast að. Vélin skilar allt að 270 Nm herslutogi og 300 Nm losunartogi. 4-Mode DRIVE CONTROL™ gefur góða stjórn við herslu og losun, ásamt sérstökum stillingum sem draga úr hættu á ofherslu og veita betri stjórn þegar bolti losnar. - 3/8″ ferkantsdrif með núningshring fyrir fljót toppaskipti - 4-Mode DRIVE CONTROL™ fyrir aukna stjórn við herslu og losun - Allt að 270 Nm herslutog - Allt að 300 Nm losunartog - Langt og mjótt hús auðveldar aðgengi á erfiðum stöðum - LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið - M12 FUEL™ með POWERSTATE™ kolalausum mótor - Vinkilhaus, aðeins 71 mm, fyrir betra aðgengi í þröngum rýmum

56.900 kr.
Höggborvél PH 26T SDS+ 800 W
Milwaukee
Uppselt

Höggborvél PH 26T SDS+ 800 W

Milwaukee PH 26T SDS+ höggborvél er öflug og endingargóð vél sem hentar vel til borunar og léttrar meitlunar í steypu, múr og önnur hörð byggingarefni. Öflugur 800 W mótor og 2,4 J höggorka skila miklum afköstum, en þrjár vinnustillingar gera vélina fjölhæfa fyrir ólík verkefni. Öryggiskúpling verndar notandann ef bor eða meitill festist og hliðarhandfang með dýptarstilli auðveldar nákvæma borun. - 2,4 J höggorka fyrir öfluga borun og meitlun - 3 vinnustillingar fyrir fjölbreytt verkefni - 4 m rafmagnssnúra fyrir aukið vinnusvæði - Hentar best fyrir boranir á bilinu 6–16 mm - Hámarks borgeta í steypu 26 mm - Hliðarhandfang með dýptarstilli fyrir nákvæma borun - Öflugur 800 W mótor - Öryggiskúpling sem verndar notandann ef bor festist

49.900 kr.
Borvél DE 13 RP 630 W
Milwaukee
Uppselt

Borvél DE 13 RP 630 W

Milwaukee DE 13 RP er öflug 630 W borvél fyrir borun í timbur og málm. Vélin er með breytilegum snúningshraða allt að 950 sn./mín. og 13 mm lyklalausri málmpatrónu. Sterk gírskipting skilar miklu togi við lágan snúningshraða og hentar því vel fyrir krefjandi borun. Fram- og afturgangur, 4 m rafmagnssnúra og hliðarhandfang auðvelda vinnu við fjölbreytt verkefni. Hliðarhandfang með dýptarmæli fylgir. - 13 mm lyklalaus málmpatróna - 4 m rafmagnssnúra - 630 W mótor fyrir krefjandi borun - Breytilegur snúningshraði allt að 950 sn./mín. - Fram- og afturgangur - Sterk gírskipting fyrir mikið tog við lágan snúningshraða - Sterk málmbygging fyrir góða endingu

46.901 kr.
Loftdæla R18PI-0 18V
Ryobi
Uppselt

Loftdæla R18PI-0 18V

Öflug 18V ONE+ loftdæla fyrir bíldekk, reiðhjól og bolta. Dælan skilar allt að 10,3 bar þrýstingi og 16 l/mín loftflæði og er með innbyggðan þrýstimæli fyrir auðvelda og nákvæma notkun. Með fylgir nál fyrir bolta, millistykki fyrir Presta-ventla og keilulaga stútur fyrir uppblástur. - 16 l/mín loftflæði - 508 mm háþrýstislanga - Allt að 10,3 bar / 150 PSI hámarksþrýstingur - Innbyggður þrýstimælir fyrir auðvelda aflestur - Innbyggð geymsla fyrir stúta og aukahluti - Hentar fyrir bíldekk, reiðhjóladekk og bolta - ONE+ 18V rafhlöðukerfi

10.990 kr.
Loftpressa SuperTiger 402M 50 L 10 bar
Fini
Uppselt

Loftpressa SuperTiger 402M 50 L 10 bar

Öflug FINI SuperTiger 402M smurð loftpressa með 50 L tanki fyrir krefjandi heimilis- og verkstæðisnotkun. Tveggja strokka V-laga dæla ásamt 2,2 kW (3 HP) mótor skilar allt að 400 l/mín. loftflæði og 10 bar hámarksþrýstingi. Stórt handfang, tvöföld hjól og stöðugir fætur auðvelda flutning og tryggja góðan stöðugleika við notkun. Hentar með fjölbreyttum loftverkfærum. - 10 bar hámarksþrýstingur - 2,2 kW (3 HP) mótor - 2 strokka V-laga dæla fyrir mikil afköst - 400 l/mín. loftflæði - 50 L lofttankur - Hentar fyrir margs konar notkun, þar á meðal flest smærri/meðalstór loftverkfæri og málningarúða (allt að 1,7 mm stútur) - Hjól og handfang auðvelda flutning - Smurð loftpressa fyrir góða endingu

159.900 kr.
Hjámiðja M18 BOS-0 125mm
Milwaukee
Uppselt

Hjámiðja M18 BOS-0 125mm

Öflug M18™ hjámiðja frá Milwaukee sem hentar vel til fínslípunar á tré, málmi og öðrum yfirborðum. Vélin er búin afkastamiklum mótor með sex hraðastillingum sem auðvelda að velja réttan slípihraða fyrir mismunandi efni. Innbyggður rykpoki með síu og meðfylgjandi ryksugutengi hjálpa til við að halda vinnusvæðinu hreinu. Með vélinni fylgja rykpoki, ryksugutengi, framlenging fyrir ryksugutengi og tveir slípipappírar. - 125 mm slípiplatti - 6 hraðastillingar - Afkastamikill mótor með allt að 24.000 slípihreyfingum á mínútu - Innbyggður rykpoki með síu - Létt hönnun, aðeins 1,6 kg - Ryksugutengi og framlenging fylgja - Slípipappírar fylgja - Velcro®-festing fyrir fljótlega skiptingu á slípipappír - Virkar með öllum MILWAUKEE® M18™ rafhlöðum

35.900 kr.
Höggborvél PH 30 POWER X SDS+ 1030 W 3,6 J
Milwaukee
Uppselt

Höggborvél PH 30 POWER X SDS+ 1030 W 3,6 J

Öflug 1030 W SDS+ höggborvél með 3,6 J höggorku fyrir borun og léttari meitlun í steypu. Vélin borar allt að 30 mm í steypu og býður upp á 3 vinnustillingar fyrir borun með höggi, hefðbundna borun og meitlun. FIXTEC™ kerfið gerir kleift að skipta hratt á milli SDS+ festingar og meðfylgjandi 13 mm lyklalausrar patrónu. Mjúk ræsing veitir betri stjórn við upphaf vinnu og öryggiskúpling verndar vél og notanda ef bor festist. Soft Hammer stilling dregur úr höggorku við borun í viðkvæmari efnum og málmgírhús stuðlar að aukinni endingu. Kemur í Kitbox með FIXTEC™ millistykki, 13 mm lyklalausri patrónu, hliðarhandfangi og dýptarstillir. - 1030 W mótor fyrir öflug afköst - 3,6 J höggorka fyrir öfluga borun og meitlun - 4 m rafmagnssnúra - Borar allt að 30 mm í steypu - FIXTEC™ fyrir hröð skipti á milli SDS+ og 13 mm patrónu - Mjúk ræsing veitir betri stjórn við upphaf vinnu - Málmgírhús fyrir aukna endingu - Soft Hammer stilling fyrir borun í viðkvæmari efnum - Öryggiskúpling verndar ef bor festist

89.991 kr.
Sverðsög M18 FUEL™ Super SAWZALL™ FSX-0C
Milwaukee
Uppselt

Sverðsög M18 FUEL™ Super SAWZALL™ FSX-0C

Mjög öflug M18 FUEL™ Super SAWZALL™ sverðsög með POWERSTATE™ kolalausum mótor, 32 mm slaglengd og allt að 3.000 slög/mín. Pendúlhreyfing eykur afköst við sögun í timbri og 5 hraðastillingar gera kleift að velja hentugan hraða eftir efninu sem sagað er. Með söginni fylgir eitt sverðsagarblað. - 5 hraðastillingar frá 1.500–3.000 slög/mín. - FIXTEC™ festing fyrir fljót og verkfæralaus blaðskipti - HIGH OUTPUT™ hönnun fyrir mikil afköst og lengri notkunartíma - LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið - M18 FUEL™ með POWERSTATE™ kolalausum mótor - Pendúlhreyfing fyrir hraðari sögun í timbri - Sagar allt að 300 mm í timbri og 150 mm málmrör - Slaglengd 32 mm - Stillanlegur fótur fyrir betri nýtingu sverðsagarblaðsins

92.900 kr.
Snúningslaser 360° M18 RLOHVG300-501C
Milwaukee
Uppselt

Snúningslaser 360° M18 RLOHVG300-501C

Milwaukee M18™ RLOHVG300-501C sjálfstillandi snúningslaser með öflugum grænum lasergeisla fyrir nákvæmar hæðarmælingar og lóðrétta afréttingu, bæði innan- og utandyra. Laserinn hefur allt að 300 m vinnudrægni með RD300G móttakara og hentar vel fyrir stórar framkvæmdir, uppsetningu loftakerfa og aðra vinnu þar sem mikil nákvæmni er nauðsynleg. Laserinn er með sjálfvirkri miðjuleit, ±5° sjálfstillingu og IP66 ryk- og vatnsvörn. Innbyggð höggviðvörun lætur vita ef tækið færist úr stað og ONE-KEY™ gerir kleift að rekja og læsa tækinu. M18™ 5,0 Ah rafhlaða veitir yfir 32 klst. notkun á einni hleðslu. M18™ B5 5,0 Ah rafhlaða, M12-18C™ hleðslutæki, RD300G móttakari með festiklemmu og harður geymslukassi (Kitbox) fylgja með. - 300 m vinnudrægni með RD300G móttakara - 32+ klst. notkun með M18™ B5 rafhlöðu - Grænn lasergeisli, allt að 4 sinnum sýnilegri en rauður - Höggviðvörun með stillanlegu næmi - IP66 ryk- og vatnsvörn - Mælinákvæmni ±1,6 mm við 30 m - ONE-KEY™ fyrir rekjanleika og fjarlæsingu - RD300G móttakari með innbyggðri fjarstýringu - Sjálfvirk miðjuleit fyrir hraða afréttingu - Sjálfstilling innan ±5° - Snúningshraði 300 / 600 / 1200 sn./mín.

441.900 kr.
Sláttuorfshnífur M18 FOPH-BCA QUIK-LOK™
Milwaukee
Uppselt

Sláttuorfshnífur M18 FOPH-BCA QUIK-LOK™

Öflugur QUIK-LOK™ sláttuorfshnífur sem passar á Milwaukee M18 FUEL™ QUIK-LOK™ fjölnota sláttuorf. Hentar vel til að hreinsa hátt gras, illgresi, þéttan gróður og smátré allt að 3 cm í þvermál. Hausinn er búinn 23 cm fjögurra tanna stálblaði og hlíf sem dregur úr dreifingu efnis við vinnu. Sterkur drifás eykur endingu og fullum snúningshraða er náð á innan við einni sekúndu. Sláttuorfshnífurinn kemur með öryggisstöng og 4 tanna stálblaði. - 23 cm sláttubreidd - Fullum snúningshraða náð á innan við einni sekúndu - Hentar til að hreinsa hátt gras, illgresi, þéttan gróður og smátré allt að 3 cm í þvermál - Hlíf sem dregur úr dreifingu efnis við vinnu - Passar á Milwaukee M18 FUEL™ QUIK-LOK™ fjölnota sláttuorf - QUIK-LOK™ festikerfi - Sterkur drifás fyrir aukna endingu - Öryggisstöng og 4 tanna stálblað fylgja

37.901 kr.
Sett M18 FUEL FPP2E3-502X borvél m/höggi + slípirokkur
Milwaukee
Uppselt

Sett M18 FUEL FPP2E3-502X borvél m/höggi + slípirokkur

Öflugt M18 FUEL™ verkfærasett með 2 vélum fyrir borun, skrúfun, slípun og skurð. Settið inniheldur M18 FPD3 borvél m/höggi með allt að 158 Nm togi og M18 FSAG125X 125 mm slípurokk sem skilar afköstum á við 1200 W rafmagnsslípurokk. Báðar vélarnar eru með POWERSTATE™ kolalausum mótor og tilheyra M18 FUEL™ línunni. Kemur með 2 × M18 B5 5,0 Ah rafhlöðum, M12-18 FC hraðhleðslutæki og 2 HD Box. - 2 M18 FUEL™ vélar fyrir fjölbreytt verkefni - 2 × M18 B5 5,0 Ah rafhlöður fylgja - 125 mm slípurokkur með afköstum á við 1200 W rafmagnsslípurokk - Borvél m/höggi með allt að 158 Nm togi - Kolalausir mótorar fyrir öflug afköst og endingu - M12-18 FC hraðhleðslutæki fylgir - 2 HD Box fyrir geymslu og flutning

139.901 kr.
1...1718192021