Brennarasett MAP m/ 2 gashylkjum
Kemper 1062EKIT er gasbrennarasett fyrir lóðun, hitun og ýmis viðhaldsverkefni. Settið inniheldur MAP-gasbrennara og 2 gashylki og kemur í handhægri tösku sem auðveldar flutning og geymslu. Hentar bæði fagfólki og þeim sem þurfa öflugan og meðfærilegan gasbrennara við vinnu. - 2 × KEMAP gashylki fylgja - 7/16" skrúfgangur fyrir gashylki - Brennari með stillanlegum loga - Brennari með sjálfvirkri Piezo-kveikju - Hentar fyrir bæði harðlóðun og mjúklóðun - Hægt að nota brennarann á hvolfi - Læsing fyrir samfelldan loga - Taska fylgir