Vinkilborvél M18 FUEL™ CRAD2-0X 30 Nm
Öflug M18 FUEL™ vinkilborvél fyrir krefjandi borun í timbri og málmi, sérstaklega þar sem erfitt er að komast að með hefðbundinni borvél. POWERSTATE™ kolalaus mótor skilar allt að 30 Nm togi og 1500 sn./mín. Vélin er með 13 mm patrónu með lykli og málmgírhús fyrir aukna endingu. Hentar meðal annars fyrir stóra viðarbor, sjálfborandi viðarbor og gatabor. - 13 mm patróna með lykli fyrir öruggt grip á borum - 30 Nm hámarkstog - Allt að 1500 sn./mín. fyrir hraða borun - Borar allt að 102 mm göt í timbur með gatabor - Kolalaus POWERSTATE™ mótor fyrir mikil afköst og endingu - Málmgírhús fyrir krefjandi notkun - Með 5.5Ah rafhlöðu getur þú borað allt að 200 holur með 22 mm bor í 50x100 mm timbur - Sambærilegur kraftur og í snúruvél - Samhæf öllum Milwaukee M18™ rafhlöðum