Gifsskurðarblað 5-1
5-í-1 blað fyrir gifs- og veggplötur (drywall). Snilldar blað fyrir rafvirkja og iðnaðarmenn sem þurfa að skera eða taka göt í gifsplötur á fljótlegan og nákvæman hátt. Alhliða OPEN-LOK™ festing veitir hraða og auðvelda skiptingu á blöðum. Festingin hentar öllum helstu gerðum tækja sem ekki nota Starlock-kerfið. Blaðið er sterkbyggt úr ryðfríu stáli og tryggir hraðan og hreinan skurð. Beitt, nákvæmt blað hentar vel fyrir fjölbreytt verkefni þar sem gæði og skilvirkni skipta máli. Eiginleikar og notkun: 1. Bogadregin fremri brún fyrir mjúkan og beinan skurð. 2. Oddar á hliðum gera auðvelt að gata gifsplötuna fyrir hreinan og nákvæman upphafsskurð. 3. Aftari hlið með blað fyrir fíngerða og nákvæma skurði, t.d. hringi eða beygjur. 4. Rifur á hlið til að snyrta burt umfram gifs. 5. Laserskorin dýptarviðmið. Tæknilýsing pdf.