Þrífótur fyrir laser TRP120 47–120 cm
Milwaukee TRP120 léttur og sterkur þrífótur úr áli fyrir nákvæma staðsetningu lasera. Hægt er að stilla hæðina frá 47–120 cm og fínstilla hana um allt að 29 cm til að ná réttri staðsetningu lasergeislans. Þrífóturinn er með 1/4" skrúffestingu og flötum haus sem hentar vel við uppsetningu innréttinga, raflagna og aðra vinnu sem krefst nákvæmra mælinga. Einnig er hægt að festa laser neðan á þrífótinn með LM360 festingu sem fæst sér. - 1/4" skrúffesting fyrir laser - 29 cm hæðarfínstilling - Álgrind fyrir létta og endingargóða hönnun - Hæðarstilling frá 47–120 cm - Möguleiki á lágri festingu með LM360 aukahlut