Kjarnaborvél m/standi 2200 W 180 mm
Öflug Yato 2200 W kjarnaborvél fyrir borun í steinsteypu, járnbentri steinsteypu og náttúrustein. Vélin tekur kjarnabora frá 12–180 mm og er með 1 1/4″ UNC festingu og vatnskælingu fyrir skilvirka borun og lengri endingu kjarnabora. Hægt er að nota vélina handhalda eða með meðfylgjandi borstandi fyrir aukinn stöðugleika og nákvæmni. - 1 1/4″ UNC festing fyrir kjarnabora - 2200 W mótor fyrir krefjandi kjarnaborun - Borstandur fylgir fyrir stöðuga og nákvæma borun - Borþvermál allt að 180 mm - Hentar fyrir steinsteypu, járnbenta steinsteypu og náttúrustein - Hægt að nota handhalda eða með borstandi - Vatnskæling eykur afköst og endingu kjarnabora - Öryggiskúpling ver vélina ef kjarnabor festist