Skordýralampi og spaði EIN-R 2in1
Kemper EIN-R 2in1 rafknúinn skordýralampi og spaði sem sameinar 2 aðferðir til að losna við flugur, moskítóflugur og önnur fljúgandi skordýr. Tækið er hægt að nota sem handvirkan rafmagnsspaða eða setja í hleðslustand þar sem LED-ljós laðar að skordýr sem drepast við snertingu við rafmagnað net. Skordýralampinn hentar fyrir allt að 15 m² svæði og má bæði hafa frístandandi eða festa á vegg. Tækið er endurhlaðanlegt og með innbyggðu LED-vasaljósi, öryggisrofa og hlífðarneti sem dregur úr hættu á snertingu við rafmagnaða netið. Hleðslustandur, hleðslutæki og snúra fylgja. - 2in1 skordýralampi og rafmagnsspaði - Allt að 15 m² þekjusvæði - Allt að 3000 V rafspenna á neti - Endurhlaðanlegt með hleðslustandi - Hægt að nota frístandandi eða festa á vegg - Hleðslustandur, hleðslutæki og snúra fylgja - Innbyggt LED-vasaljós - Skordýraeyðing án skordýraeiturs - Öryggisrofi og hlífðarnet