Kíttisgrind M12 PCG310C-0
Öflug og nett M12™ kíttisgrind frá Milwaukee sem hentar vel til að bera á lím, kítti og þéttiefni úr 310 ml hylkjum. Vélin skilar allt að 1.780 N þrýstikrafti og er búin sex hraðastillingum sem tryggja nákvæma stjórn á efnisflæði. Sjálfvirk dropavörn kemur í veg fyrir leka þegar gikknum er sleppt og öflugur þrýstistimpill tryggir jafnt flæði og nýtir innihald hylkisins til fulls. - 310 ml hylkjahaldari fylgir - 6 hraðastillingar fyrir nákvæma stjórn á efnisflæði - Allt að 1.780 N þrýstikraftur - Hentar fyrir byggingarlím, kítti og þéttiefni - Innbyggður hleðsluvísir á rafhlöðu - Jafnt og stöðugt efnisflæði með öflugum þrýstistimpli - REDLINK™ rafeindavörn gegn yfirálagi - Sjálfvirk dropavörn sem dregur úr leka þegar gikknum er sleppt - Virkar með öllum MILWAUKEE® M12™ rafhlöðum