Laser hitamælir -50-600°C
Yato YT-73200 innrauður hitamælir með laser fyrir hraðar og snertilausar hitamælingar á bilinu -50°C til +600°C. Hentar vel til að mæla yfirborðshita við viðhald, bilanagreiningu, raflagnir, loftræstingu og ýmis önnur verkefni. Rauður lasergeisli auðveldar miðun og baklýstur LCD skjár sýnir niðurstöður á skýran hátt. Hitamælirinn er með MAX/MIN mælingu, stillanlegum útgeislunarstuðli og hljóðviðvörun þegar hitastig fer yfir eða undir stillt mörk. Mæling tekur aðeins 0,5 sekúndur og tækið slekkur sjálfkrafa á sér eftir 7 sekúndna aðgerðaleysi. - Baklýstur LCD skjár - Hljóðviðvörun fyrir háan og lágan hita - Hitamælingar frá -50°C til +600°C - MAX/MIN virkni fyrir hæsta og lægsta hitastig - Mælihlutfall 12:1 - Mælitími aðeins 0,5 sekúndur - Rauður laser fyrir nákvæma miðun - Sjálfvirk slökkvun eftir 7 sekúndur - Stillanlegur útgeislunarstuðull 0,10–1,00