Móttakari fyrir laser Maestro RED
Futech Maestro RED lasermóttakari fyrir rauða leysigeisla. Móttakarinn auðveldar staðsetningu leysigeisla þegar hann er erfiður að sjá með berum augum, til dæmis í mikilli birtu eða við mælingar yfir lengri vegalengdir. Hentar vel við hæðarmælingar, uppsetningar og aðra nákvæmnisvinnu á byggingarsvæðum. Móttakarinn gengur fyrir 1 × AA rafhlöðu. - 5 nákvæmnisstillingar, 0,5 / 1 / 2 / 5 / 10 mm - Allt að 400 m drægni - Hljóðmerki fyrir staðsetningu leysigeisla - IP67 ryk- og vatnsvörn - LCD-skjár að framan og aftan - LED-ljós að framan - Móttökusvæði 90 mm - Sýnir frávik frá leysigeisla í millimetrum