
Verð
129.900 kr.
Ertu með besta verðið?
Futech Spinner Green sjálfstillandi snúningslaser með grænum lasergeisla fyrir nákvæmar hæðarmælingar, afréttingar og hallastillingar innan- og utanhúss. Laserinn er með rafknúna sjálfstillingu, ±1,5 mm nákvæmni á 10 m og allt að 250 m drægni í hvora átt með meðfylgjandi Gyro móttakara. Hægt er að nota hann bæði lárétt og lóðrétt og stilla halla á X- og Y-ás. Tækið er með IP55 ryk- og rakavörn og 5/8" festingu fyrir þrífót. Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri 7,4 V Li-ion rafhlöðu. Afhent í tösku með Gyro lasermóttakara, 136 cm þrífæti, 230 cm mælistiku, fjarstýringu og fylgihlutum.