
Verð
11.990 kr.
Ertu með besta verðið?
ATLE kassajárn frá Hultafors er handhægt og einfalt verkfæri til að draga nagla úr timbri. Þrátt fyrir stærðina nær hann auðveldlega að draga 5 tommu nagla (um 127 mm), jafnvel þótt hausinn vanti eða naglinn sitji djúpt í viðnum. Kjaftarnir grípa um naglann og herða takið eftir því sem meira er togað. Klónni á smíðahamri er einfaldlega krækt í skrúfu á naglatogaranum og naglinn dreginn út með hamrinum. Ef naglahausinn er fastur eða í sléttu við viðinn má slá létt á toppinn á verkfærinu svo kjaftarnir grafi sig niður fyrir hausinn.
Efni: Rauðlakkað stál.