
Verð
14.990 kr.
Ertu með besta verðið?
Gaslóðbolti PRO frá Kemper með stillanlegum haus, piezo-kveikju og áfyllanlegum 9 g bútangasgeymi. Gaslóðboltinn hentar fyrir nákvæma lóðun, brennimerkingar, hitaskurð og upphitun á efnum. Hann er með stillanlegan gasstyrk, læsingu fyrir samfelldan loga og gegnsæjan geymi sem auðveldar eftirlit með gasmagni.Hámarkshiti loga er 1.300 °C og vinnsluhiti allt að 650 °C. Gaslóðboltinn er afhentur í plasttösku ásamt ýmsum aukahlutum fyrir fjölbreytta notkun.