Rafmagnshitablásari með 2000 W hámarksafli, ætlaður til upphitunar innanhúss. Hentar sem viðbótarhitun þar sem þörf er á auknum hita, til dæmis á skrifstofum, í vinnuherbergjum eða öðrum minni rýmum.
- 2000 W hámarksafl
- Rafmagnshitablásari fyrir upphitun innanhúss
- 2 hitastillingar, 1000 W og 2000 W
- Gaumljós sýnir þegar tækið er í gangi
- Handfang auðveldar flutning
- Hentar fyrir rými allt að 20 m²
- Stillanlegur hitastillir með frostvarnarstillingu
- Viftustilling án hitunar
- Veltivörn slekkur á tækinu ef það veltur
- Yfirhitavörn fyrir aukið öryggi