ICU BRZ smíðabuxur CL1 gular/svartar hi-vis
HH Workwear ICU BRZ eru léttar og slitsterkar Hi-Vis smíðabuxur með 4-átta teygju sem veitir mikil þægindi og góðan hreyfanleika við vinnu. Buxurnar eru með BRZ loftræstingu á hliðum og loftgötum að aftan sem hjálpa til við að auka loftflæði við krefjandi vinnu. Lausir smíðavasar úr Stretch CORDURA® eru styrktir fyrir aukið slitþol og hægt er að renna þeim af eftir þörfum. Buxurnar eru einnig með CORDURA® styrkingum á hnjám, tommustokksvasa og skálmendum. Hnépúðavasar eru aðgengilegir utan frá og hægt er að stilla staðsetningu hnépúða um 5 cm. Skálmasídd má lengja um allt að 5 cm. Buxurnar uppfylla EN ISO 20471 Class 1 fyrir sýnileikafatnað. - 4-átta teygja - BRZ loftræsting á hliðum - CORDURA® styrkingar á hnjám og skálmendum - Hnépúðavasar með 5 cm stillingu - Lausir CORDURA® smíðavasar - Loftgöt að aftan - Sniðin hné - Skálmasídd hægt að lengja um 5 cm - Stillanleg skálmabreidd - Tommustokksvasi - YKK® rennilásar Efni: Aðalefni: 94% pólýamíð, 6% elastan – 244 g/m² | Aukaefni: 92% pólýamíð, 8% elastan – 240 g/m² | Styrking: 97% pólýamíð, 3% elastan – 307 g/m²