
Verð
5.189 kr.
Ertu með besta verðið?
Compact járnsög frá Milwaukee með fyrirferðarlítilli hönnun sem hentar sérstaklega vel fyrir sögun í þröngum rýmum og á stöðum þar sem erfitt er að koma hefðbundinni járnsög að. Hægt er að skipta um sagarblað án verkfæra, allt að tíu sinnum hraðar en með hefðbundnum festibúnaði. Stillanleg blaðlengd auðveldar sögun þétt upp við yfirborð og gúmmíklætt handfang veitir þægilegt og öruggt grip. Sögin tekur allt að 12" (300 mm) sagarblöð og kemur með 250 mm blaði með 24 tönnum á tommu. (24 TPI)