
Verð
77.990 kr.
Ertu með besta verðið?
Öflug og nett M18 FUEL™ hjólsög frá Milwaukee sem skilar afköstum sambærilegum við rafmagnsknúnar hjólsagir. POWERSTATE™ kolalausi mótorinn ásamt HIGH OUTPUT™ tækninni tryggir mikið afl og langan vinnutíma. Hjólsögin er búin 165 mm sagarblaði með allt að 57 mm skurðardýpt við 90° og 50° hallastillingu fyrir fjölbreytt verkefni. Magnesíumsökkull dregur úr þyngd án þess að skerða endingu og LED vinnulýsing ásamt rykblásara tryggja góða yfirsýn yfir skurðlínuna. Með vélinni fylgir hliðarleiðari (rip fence).