
Verð
52.900 kr.
Ertu með besta verðið?
Öflugur ONE+™ HP kolalaus herslulykill frá Ryobi sem hentar vel fyrir krefjandi verkefni við bílaviðgerðir, vélaviðhald og byggingarvinnu. Högglykillinn skilar allt að 1000 Nm herslutogi og 1600 Nm losunartogi sem auðveldar herslu og losun á stórum boltum og festingum. Fjórar togstillingar, þar á meðal AutoStop-stilling, veita aukna stjórn og hjálpa til við að koma í veg fyrir ofherslu. Tri-Beam LED vinnulýsing lýsir upp vinnusvæðið og dregur úr skuggamyndun.