Límkítti MS60 290ml svart
Zettex MS 60 Polymer er alhliða límkítti til að festa alls kyns efni nema PE og PP. Límkíttið er hægt að nota á hvaða yfirborði sem er. Zettex MS 60 Polymer er algjörlega laust við leysiefni, mýkiefni, sílikon og ísósýanöt og er Isega vottað, hægt að nota það í matvælaiðnaði. Viðheldur teygjanlegum eiginleikum sínum til frambúðar. - Hraðherðandi, 3 mm á 24 klst. og rýrnunarlaust - Hátt vélrænt viðnám. - Kemur í veg fyrir sveppa- og bakteríuvöxt - Inniheldur ekki ísósýanat, leysiefni eða sílikon.