
Útsöluverð
26.207 kr.
Ertu með besta verðið?
Ryobi RB360GLL sjálfstillandi línulaser með grænum lasergeislum sem eru allt að 4 sinnum sýnilegri en rauðir. Laserinn varpar 360° láréttri línu ásamt lóðréttri línu og krosslínu, sem auðveldar nákvæma uppsetningu á hillum, innréttingum og öðrum hlutum í sömu hæð á mismunandi veggjum. Drægnin er allt að 25 m og hægt er að kveikja á lasergeislunum eftir þörfum. Laserinn stillir sig sjálfkrafa innan ±4° á aðeins 2–4 sekúndum og LED-ljós gefur til kynna hvort hann sé rétt stilltur. Hann er með slitsterkri gúmmíhúð og 1/4" skrúfgangi fyrir þrífætur og Ryobi RBCLTP1 hæðarstiku. 4 x AA rafhlöður og geymslutaska fylgja með.