Mjög öflug M18 FUEL™ Super SAWZALL™ sverðsög með POWERSTATE™ kolalausum mótor, 32 mm slaglengd og allt að 3.000 slög/mín. Pendúlhreyfing eykur afköst við sögun í timbri og 5 hraðastillingar gera kleift að velja hentugan hraða eftir efninu sem sagað er. Með söginni fylgir eitt sverðsagarblað.
- 5 hraðastillingar frá 1.500–3.000 slög/mín.
- FIXTEC™ festing fyrir fljót og verkfæralaus blaðskipti
- HIGH OUTPUT™ hönnun fyrir mikil afköst og lengri notkunartíma
- LED vinnuljós lýsir upp vinnusvæðið
- M18 FUEL™ með POWERSTATE™ kolalausum mótor
- Pendúlhreyfing fyrir hraðari sögun í timbri
- Sagar allt að 300 mm í timbri og 150 mm málmrör
- Slaglengd 32 mm
- Stillanlegur fótur fyrir betri nýtingu sverðsagarblaðsins