KVK Oxford 4X þjónustubuxur svartar
HH Workwear Oxford 4X eru léttar og sveigjanlegar þjónustubuxur fyrir konur, hannaðar fyrir störf þar sem mikil hreyfing er hluti af vinnudeginum. 4-way stretch efni og snið með auknu rými í klofi veita góða hreyfigetu og gera buxurnar þægilegar við fjölbreytt störf. Buxurnar eru með rúmgóðum lærvösum með lokun fyrir helstu smáhluti og búnað. Styrking neðst á skálmum verndar gegn sliti á álagssvæðum og breið beltislykkja að aftan veitir aukinn stöðugleika, meðal annars þegar verkfærabelti er notað. Hægt er að lengja skálmarnar um allt að 5 cm til að aðlaga síddina. Endurskinsatriði auka sýnileika við léleg birtuskilyrði og ID-kortalykkja heldur korti aðgengilegu við vinnu. - 4-way stretch efni - AMANN þræðir - Breið beltislykkja að aftan - Endurskinsatriði - ID-kortalykkja - Lærvasar m/ lokun - Létt efni - Skálmar lengjanlegar um 5 cm - Styrking neðst á skálmum - YKK® rennilás Efni: Aðalefni: 94% pólýamíð, 6% elastan – 260 g/m² | Aukaefni: 79% bómull, 18% pólýester, 3% elastan – 265 g/m² | Styrking: 100% pólýamíð – 195 g/m².