
3M™ 4540+ er léttur einnota hlífðargalli sem veitir Type 5 vörn gegn hættulegu ryki og ögnum og Type 6 vörn gegn léttum vökvaslettum. Gallinn er með hettu, teygjum við mitti og ökkla og stroffi við úlnliði fyrir góða aðlögun. Öndunarsvæði á baki eykur þægindi við notkun. Gallinn veitir einnig afrafmögnunarvörn og vörn gegn geislavirkum ögnum samkvæmt EN 1073-2 Class 1.
Efni: Hvítt efni: pólýprópýlen og pólýetýlen, 55 g/m² | Blátt baksvæði: SMMMS pólýprópýlen.