
Verð
69.900 kr.
Ertu með besta verðið?
Futech Multicross MC3D Compact sjálfstillandi krosslínulaser með 3 grænum 360° laserflötum, 1 láréttum og 2 lóðréttum. Hentar vel fyrir nákvæmar hæðarstillingar, afréttingar og uppsetningar við byggingar- og innanhússvinnu. Laserinn er með ±2 mm nákvæmni á 10 m og allt að 150 m drægni í hvora átt með samhæfum móttakara. Sjálfstillandi pendúl, handvirk hallastilling og IP54 ryk- og rakavörn auðvelda notkun við fjölbreyttar vinnuaðstæður. Burðartaska, 2 Li-ion rafhlöður, hleðslubúnaður, fjarstýring, segulfesting og markplata fylgja.