
Vatnsheldar Helly Hansen Workwear Gale regnbuxur með þægilegu dömusniði sem veita góða vörn gegn rigningu og vindi. Buxurnar eru úr slitsterku PU-húðuðu efni sem heldur vætu úti og hentar vel við vinnu í blautum og krefjandi aðstæðum. Stillanlegt mitti tryggir góða passun og smellur neðst á skálmum gera auðvelt að þrengja þær eftir þörfum. Regnbuxurnar uppfylla EN 343 staðalinn fyrir vörn gegn úrkomu og passa vel við Gale regnjakkann úr sömu vörulínu.
Efni: 100% pólýester með PU-húðun – 240 g/m².