
Verð
42.379 kr.
Ertu með besta verðið?
HH Workwear Kensington eru hlýjar og vatnsheldar vetrar smíðabuxur, hannaðar fyrir krefjandi vinnu í köldu og blautu veðri. HELLY TECH® Professional efni og límdir saumar veita góða vörn gegn vindi og vatni, en einangrun úr endurunnu pólýester heldur hita við kaldar aðstæður. Buxurnar eru með fjarlægjanlegum CORDURA® smíðavösum með tvöföldum botni og styrkingum fyrir aukið slitþol. Þær eru einnig HH Connect™ samhæfar, þannig að hægt er að skipta um vasa og aðlaga vasauppsetninguna að verkefninu hverju sinni. CORDURA® styrkingar á hnjám og skálmaendum auka endingu á álagssvæðum. Hnépúðavasar eru aðgengilegir innan frá og hægt er að stilla staðsetningu hnépúðanna um 5 cm. Buxurnar eru með fjarlægjanlegum teygjanlegum axlaböndum, snjógildrum við skálma og rennilásum upp að hnjám sem auðvelda notkun yfir vinnuskó. Skálmarnar má lengja um 5 cm.
Efni: Aðalefni: 100% pólýester – 215 g/m² | Styrking: 100% CORDURA® pólýamíð – 210 g/m² | Fóður: 100% pólýester. Einangrun: 100% endurunnið pólýester – 80 g/m².