
Útsöluverð
16.986 kr.
Ertu með besta verðið?
Luna öryggisskór frá HH Workwear eru léttir og þægilegir vinnuskór, sérstaklega hannaðir fyrir konur. Skórnir eru með sportlegu útliti, öndunargóðu yfirborði og rakaleiðandi fóðri sem tryggir góð þægindi allan vinnudaginn. Skórnir eru með öryggistá úr áli og málmlausri naglavörn sem verndar gegn hvössum hlutum. Léttur EVA-millisóli og Ortholite® innlegg veita góða höggdeyfingu, en slitsterkur og hálkuþolinn gúmmísóli tryggir gott grip við fjölbreyttar vinnuaðstæður.
Efni: Yfirborð úr örtrefjaefni með styrkingum úr pólýúretani (PU). EVA-millisóli og ytri sóli úr gúmmíi.