
Frábært 10mm EDC sporjárn með hulstri frá sænska framleiðandanum Hultafors. Hugsaður fyrir mikla nákvæmis vinnu og ahliða notkun. Sporjárnið er með fullkomlega brýnt hágæða japanskt stálblað með þungu handfangi, hannað fyrir þung högg. Virkilega beittur meitill fyrir þá sem þurfa styrk, virkni og nákvæmni. Sporjárnið er einnig ryðvarið (EPD). Því fylgir hagnýtt snjallhulstur með klemmu, sem passar bæði á belti eða hnapp. Sporjárnið eigum við einnig til í 6mm EDC, 12mm EDC, 16mm EDC, 18mm EDC, 20mm EDC, 25mm EDC og 32mm EDC.
Beittur og skarpur meitill fyrir styrk, virkni og nákvæmni
Hannað fyrir alhliða notkun og nákvæmis vinnu
Hágæða japanskt stálblað
Mjög öflugt handfang
Ryðvarið (EPD)
Snjallhulstur með klemmu, sem passar bæði á belti eða hnapp
Lengd: 232mm
Breidd blaðs: 10mm