
Verð
8.690 kr.
Ertu með besta verðið?
SHOCKWAVE™ IMPACT DUTY felgutoppasett frá Milwaukee með þremur ½″ höggtoppum í stærðunum 17, 19 og 21 mm. Settið er sérstaklega hannað fyrir losun og herslu hjólbolta og hentar vel fyrir dekkjaverkstæði, bifvélavirkja og aðra sem vinna við hjólbarða og felgur. Felgutopparnir eru framleiddir úr hágæða stálblöndu sem tryggir styrk og endingu við krefjandi notkun. Þunnir veggir toppanna auðvelda aðgengi að hjólboltum þar sem lítið pláss er í felgunni. Hver toppur er litamerktur svo auðvelt sé að þekkja stærðirnar í sundur og finna réttan topp. Með settinu fylgja þrír felgutoppar í stærðunum 17, 19 og 21 mm ásamt segulmögnuðum toppahaldara fyrir þægilega geymslu og skipulag.
Innifalið:
1 × Felgutoppur 17 mm (4932493371)
1 × Felgutoppur 19 mm (4932493372)
1 × Felgutoppur 21 mm (4932493373)
1 × Segulmagnaður toppahaldari