
Verð
59.990 kr.
Ertu með besta verðið?
Öflugur og fyrirferðarlítill M12 FUEL™ vinkilhraðslípari frá Milwaukee með kolalausum POWERSTATE™ mótor og breytilegum hraða fyrir nákvæma slípun, frágang og yfirborðsvinnu. Nýja FDGA2 útgáfan skilar allt að 50% meira afli en fyrri gerð og er hönnuð til að veita mikil afköst í þéttbyggðri og meðfærilegri vél. Hraðslíparinn er aðeins 119 mm að lengd og hentar sérstaklega vel til vinnu í þröngum rýmum. Fjórar hraðastillingar og stiglaus hraðastýring í rofa gera auðvelt að aðlaga hraðann að mismunandi efnum og verkefnum, meðal annars við vinnslu á ryðfríu stáli. Vélin er með spindillæsingu fyrir fljótlegri skipti á fylgihlutum, öryggisrofa sem kemur í veg fyrir óviljandi gangsetningu og LED-ljósi sem lýsir upp vinnusvæðið. Með vélinni fylgja 6 og 8 mm spennur og lykill til að skipta um þær.