
TEGERA® Welding 130A eru sterkir og þægilegir suðuhanskar úr hágæða geitaskinni, hannaðir til að veita góða vörn án þess að skerða fingurnæmi og stjórn.
Hanskar þola snertihita allt að 100°C og veita vörn gegn suðuneistum og slípislettum. Þeir eru með KEVLAR® saumum, styrktum vísifingri og eldtefjandi eiginleikum sem auka endingu og öryggi við suðuvinnu.