Gaslóðbolti PRO m/ stillanlegum haus
Gaslóðbolti PRO frá Kemper með stillanlegum haus, piezo-kveikju og áfyllanlegum 9 g bútangasgeymi. Gaslóðboltinn hentar fyrir nákvæma lóðun, brennimerkingar, hitaskurð og upphitun á efnum. Hann er með stillanlegan gasstyrk, læsingu fyrir samfelldan loga og gegnsæjan geymi sem auðveldar eftirlit með gasmagni.Hámarkshiti loga er 1.300 °C og vinnsluhiti allt að 650 °C. Gaslóðboltinn er afhentur í plasttösku ásamt ýmsum aukahlutum fyrir fjölbreytta notkun. - Allt að 40 mínútna notkun á einni áfyllingu - Áfyllanlegur 9 g bútangasgeymir - Gegnsær geymir til að fylgjast með gasmagni - Hámarkshiti loga 1.300 °C - Hentar fyrir lóðun, brennimerkingar og hitaskurð - Læsing fyrir samfelldan loga - Piezo-kveikja - Stillanlegur gasstyrkur - Stillanlegur haus með 3 hallastillingum - Vinnsluhiti allt að 650 °C